Dynfari - Dynfari Drífa, dreyra þakin Dynfari, ber andlit mitt Nöpur, dimm nóttin Ber að líta, minn bróðir Ei lengur bíður dauðans Holdið kyrrt, augun stillt Gæddur lífi ei meir Ég hníg niður Og horfi til himins Öskra, ákalla Til einskis, til tómsins Leynist von í myrkviði eilífðarinnar? Leynist ljós í helli fáfræðinnar? Vonarglæta, þó aðeins augnablik Augnablik hlýju, tærleika... Líkið stífnar Tárin þerrast Augun ljúkast upp Og augnablikið líður hjá... Aftur rís, þó harmi sleginn Úrkula vonar, geng enn Til einskis, til tómsins Rofar til sólar Örmagna, frosin sál Blínir á ljósið Nei. Mín bíður dauðinn. http://rockerek.hu/