Sólstafir - Til Valhallar (Óðinn:) heyri ég Heimdall í horn blása, gyllt gjallarhorn gestum fagnar. Regnboginn skelfur; skrefhörðum mönnum bifrastar brú brakar undir. (Heimdallur:) Sem vörður Valhallar ég vara yður: Fylkjast hingað fræknar hetjur. Bjóðið bekki og borð hlaðið! Öl berið inn, Óðinn fær gesti. (Óðinn:) Framtíð þjóðar fæddist með yður, sem fórnuðu lífi, en lifið þó í eilífum sóma afburðarmanna. Velkomnir, vinir… Valhallar til!!! http://rockerek.hu/